Hagnaður Nordea dróst saman

BERTIL ENEVAG ERICSON / TT

Hagnaður sænska bankans Nordea dróst saman á öðrum fjórðungi ársins á meðan hagnaður eins helsta keppinautar hans, Handelsbanken, jókst um 9% milli ára.

Hagnaður Nordea dróst saman um 11% og nam alls 686 milljónum evra, sem jafngildir um 106 milljörðum króna. Tekjurnar stóðu nánast í stað.

Handelsbanken skilaði hins vegar 437 milljóna evra hagnaði, að því er segir í frétt AFP.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK