Þorskafurðir 32% af heildarverðmætinu

Útflutningsverðmæti (FOB) fiskafurða árið 2013 var rúmlega 272 milljarðar íslenskra króna. Þorskafurðir gáfu mestu verðmætin árið 2013 eða 32% af heildarverðmæti sjávarafurða.

Uppsjávartegundirnar loðna, makríll og síld voru einnig talsvert verðmætar og voru samanlögð verðmæti þeirra 29% af heildarverðmæti fiskafurða. Þorskur, makríll, loðna og síld standa því saman að um 61% af heildarútflutningsverðmætum sjávarafurða. Það eru þess vegna þessar fjórar tegundir sem skapa mestu tekjurnar fyrir íslensk þjóðfélag, að því er segir í frétt á vef Landssambands íslenskra útvegsmanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK