365 og Tal skoða sameiningu

365 miðlar og Tal hafa undirritað viljayfirlýsingu um sameiningu.
365 miðlar og Tal hafa undirritað viljayfirlýsingu um sameiningu. Heiddi /Heiðar Kristjánsson

Viljayfirlýsing um sameiningu 365 miðla og Tals hefur verið undirrituð, en viðræður hafa staðið yfir milli fyrirtækjanna undanfarið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá 365, en slík sameining yrði háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og Póst- og fjarskiptastofnunar. Verði af sameiningunni munu eigendur Tals, m.a. Auður I, fagfjárfestasjóður sem er í rekstri hjá Virðingu, eignast hlut í 365 miðlum.

365 miðlar hafa lýst því yfir að félagið ætli sér inn á fjarskiptamarkaðinn af fullum krafti og hefur fyr­ir­tækið meðal ann­ars hafið sölu á netteng­ing­um fyr­ir heim­ili. Áformað er að hefja 4G-farsímaþjón­ustu á kom­andi miss­er­um.

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365, segir að góður gangur sé í viðræðunum. „Við sjáum tækifæri í sameiningu félaganna. Tal hefur komið sér vel fyrir á markaðnum og þar innan dyra er mikil reynsla og þekking sem við hjá 365 munum geta nýtt okkur á fjarskiptamarkaðnum,“ segir í tilkynningunni. Hann segir miklar breytingar framundan á dreifingu sjónvarpsefnis þar sem snjalltæki séu í auknum mæli að taka við hlutverki hinna hefðbundnu myndlykla. Mikilvægt sé því fyrir 365 að tileinka sér nýja tækni í dreifingu sjónvarpsefnis.

Petrea I. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Tals, tekur undir með Sævari. Hún segir að í kjölfar þessarar sameiningar verði unnt að bjóða nýjungar, sem ekki hafi sést áður á fjarskiptamarkaðnum, neytendum til hagsbóta.

Ekki verða gefnar frekari upplýsingar á meðan möguleg sameining er til skoðunar hjá eftirlitsstofnunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK