Vilja efla viðskiptasambönd í Kanada

Frá Kanada.
Frá Kanada. mbl.is/Steinunn

Viðskiptafulltrúi Íslands í Norður Ameríku og Íslandsstofa, í samstarfi við sendiráð Íslands í Kanada, standa að kaupstefnum í Edmonton, Calgary og Halifax í Kanada dagana 20.- 24. október næstkomandi.

Framleiðendum og útflytjendum sjávarafurða á Íslandi verður þar boðin þjónusta og aðstoð við kynningarstarf með það að markmiði að koma á viðskiptasamböndum í Kanada. Verkefnið er unnið undir heitinu „Fresh or Frozen Fresh – Sourcing from Iceland“.

Í hverri borg verður haldin stutt kynning á íslenskum sjávarútvegi og að því loknu munu íslensk fyrirtæki hitta erlenda kaupendur. Hákon Már Örvarsson matreiðslumeistari verður jafnframt með í för og mun hann bjóða upp á íslenskar sjávarafurðir í móttöku í lok hvers fundar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK