Kaldar kveðjur frá Arion banka

Arion banki.
Arion banki. mbl.is/Kristinn

„Þetta eru kaldar kveðjur og óviðbúnar aðgerðir frá banka sem sýnir stórfelldar hagnaðartölur og ofurlaun æðstu stjórnenda,“ segir í yfirlýsingu frá stjórnendum Strandabyggðar vegna lokunar útibús Arion banka á Hólmavík. Sveitastjórnin ætlar að flytja viðskipti sín frá Arion banka og annað.

„Vonbrigði og reiði lýsa best viðbrögðum og tilfinningum stjórnenda Strandabyggðar og íbúa sveitarfélagsins eftir að Arion banki tilkynnti um lokun útibús bankans á Hólmavík. Engar upplýsingar eða aðvaranir höfðu borist stjórnendum sveitarfélagsins um fyrirhugaða lokum en sveitarstjóra bárust upplýsingar um lokun bankans frá blaðamanni mbl.is eftir lok vinnudags,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá segir að starfsmönnum bankans sem missa störf sín í þessum aðgerðum sé illa brugðið og staða þeirra sé mjög slæm þar sem ekki er um auðugan garð að gresja þegar kemur að lausum störfum í sveitarfélaginu. Útibúið á Hólmavík er eina útibú Arion banka á Vestfjörðum.

„Sveitarfélagið Strandabyggð hefur beint viðskiptum sínum til Arion banka í gegnum árin enda hefur þjónusta starfsmanna útibúsins verið framúrskarandi góð en nú mun sveitarstjórn hefja undirbúning þess að flytja viðskiptin annað.“

Einnig er á það bent að í afkomutilkynningu frá Arion banka þann 27. ágúst 2014 komi fram að hagnaður bankans á fyrri hluta ársins nemi 17,4 milljörðum króna sem sé veruleg aukning frá árinu á undan. „Útibúið á Hólmavík er lítið og fámennt og má leiða að því líkur að rekstrarkostnaður þess sé smávægilegur í samhengi við þjónustuna sem það veitir og afkomutölur bankans. Bankinn, sem er í eigu erlendra kröfuhafa, virðist kæra sig kollóttan um íslenskt samfélag og taka hagnað og græðgi fram yfir allt.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK