Atvinnuleysi ekki minna síðan 2008

Atvinnuleysi mældist 4% á þriðja ársfjórðungi.
Atvinnuleysi mældist 4% á þriðja ársfjórðungi. mbl.is/Rax

Á þriðja ársfjórðungi 2014 voru að jafnaði 190.400 manns á aldrinum 16 til 74 ára á vinnumarkaði og fjölgaði um 1 prósent frá sama tíma ári áður eða um 1.900 manns. Jafngildir þetta 82,4% atvinnuþátttöku. Fjöldi fólks utan vinnumarkaðar var 40.800 á tímabilinu og er það fjölgun um 1.500 manns frá fyrra ári eða um 3,8 prósent. Atvinnuþátttaka kvenna var 79,4 prósent og karla 85,3 prósent. 

Á þriðja ársfjórðungi 2013 voru alls 188.500 á vinnumarkaði eða 82,7 prósent atvinnuþátttaka og utan vinnumarkaðar voru þá 39.300. Atvinnuþátttaka kvenna var þá 79,8 prósent og karla 85,7 prósent.

Á vinnumarkaði eða til vinnuaflsins teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Atvinnuþátttaka er hlutfall starfandi og atvinnulausra af mannfjölda 16-74 ára

Á þriðja ársfjórðungi 2014 voru 182.800 manns starfandi eða 79,1 prósent af mannfjölda. Hlutfall starfandi kvenna var 75,7 prósent og starfandi karla 82,3 prósent. Frá öðrum ársfjórðungi 2013 fjölgaði starfandi fólki um 1,4 prósent eða um 2.600 manns, en hlutfall þess af mannfjölda stóð hins vegar í stað á milli ára.

Atvinnuleysi 4 prósent

Á þriðja ársfjórðungi 2014 voru að meðaltali 7.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða fjögur prósent vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 4,5 prósent hjá konum og 3,5 prósent hjá körlum. Samanburður þriðja ársfjórðungs 2014 við sama ársfjórðung 2013 sýnir að atvinnulausum fækkaði um 600 og hlutfallið lækkaði um 0,4 prósentustig.

Atvinnuleysi hefur ekki mælst jafn lágt í ársfjórðungum síðan á fjórða ársfjórðungi 2008, en þá mældist atvinnuleysi einnig 4 prósent.

Dregur úr langtímaatvinnuleysi

Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir en þegar litið er til síðustu 12 mánaða hefur dregið nokkuð úr því hvað fjölda varðar. Á þriðja ársfjórðungi 2014 höfðu um 900 manns verið langtímaatvinnulausir eða 0,5 prósent vinnuaflsins samanborið við 1.900 eða 1 prósent vinnuaflsins á þriðja ársfjórðungi 2013. Langtímaatvinnuleysi hefur ekki mælst jafn lágt síðan á þriðja ársfjórðungi 2009. 

Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK