Árni Geir forstjóri Icelandic Group

Árni Geir Pálsson er nýr forstjóri Icelandic Group.
Árni Geir Pálsson er nýr forstjóri Icelandic Group.

Árni Geir Pálsson, stjórnarmaður í Icelandic Group, hefur að beiðni stjórnar fallist á að taka að sér starf forstjóra hjá félaginu eftir að Magnús Bjarnason ákvað að láta af störfum sem forstjóri.

Í tilkynningu frá félaginu kemur m.a. fram að Jóhann Gunnar Jóhannsson, fjármálastjóri Icelandic, muni samhliða núverandi starfi verða staðgengill forstjóra.

Síðastliðin tvö ár hefur Magnús stýrt félaginu og leitt árangursríka sameiningu starfseminnar í Bretlandi í eitt fyrirtæki. Árni Geir, sem tekur nú við forstjórastarfi Icelandic Group, hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2011. Hann hefur því mikla þekkingu og yfirsýn yfir starfsemi félagsins, en auk stjórnarstarfa fyrir félagið starfaði hann hjá Icelandic á árunum 2000 til 2005.

Árni Geir lauk Cand Oecon prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands af framleiðslu- og stjórnunarsviðum árið 1989 og lauk MSc prófi í alþjóðaviðskiptum með áherslu á stjórnun og stefnumótun frá Copenhagen Business School árið 1999.

Hann hefur víðtæka reynslu af rekstri og hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og samtaka bæði hérlendis og erlendis. Hann hefur á undanförum árum verið sjálfstætt starfandi rekstrarráðgjafi.

Á árunum 2006 til 2008 var hann framkvæmdastjóri Median, sem er sérhæft hugbúnaðarfyrirtæki og vinnsluaðili á sviði greiðslumiðlunar, og 2005 til 2006 var hann framkvæmdastjóri Latabæjar. Á árunum 2000 til 2005 var Árni Geir framkvæmdastjóri fyrirtækjaþróunar hjá Icelandic Group (SH) en þar áður þróunarstjóri hjá Frjálsri fjölmiðlun, eigandi auglýsingastofunnar Mátturinn og dýrðin, kynningarstjóri Samskipa og verðbréfamiðlari hjá VÍB.

„Icelandic Group hefur á undanförnum árum tekist á við margar krefjandi aðstæður og breytingar. Nú síðast með sameiningum félaga í Bretlandi sem Magnús Bjarnason hefur leitt. Ég vil nota tækifærið og þakka Magnúsi störf fyrir félagið og óska honum velfarnaðar í framtíðinni. Ég fagna því að fá Árna Geir Pálsson til starfa fyrir félagið. Reynsla hans og þekking á Icelandic mun nýtast félaginu vel,“ er haft eftir Herdísi Fjeldsted, stjórnarformanni Icelandic Group, í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK