Dræm sala íslenskra rafbóka helst í hendur við lítið framboð

49 rafbækur eru skráðar í Bókatíðindi í ár, færri en …
49 rafbækur eru skráðar í Bókatíðindi í ár, færri en í fyrra. mbl.is/Ómar Óskarsson

Jólabækurnar streyma nú á markað, fjöldi prentaðra titla er nú kominn í verslanir en fáar rafbækur standa kaupendum til boða. Í Bókatíðindum, sem Félag íslenskra bókaútgefenda gefur út, eru 49 rafbækur skráðar. Í fyrra voru þær 60 talsins og árið þar áður, 2012, voru þær 94. Útgefnum rafbókum hefur því fækkað en ekki fjölgað.

Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda, segir þróun rafbókamarkaðarins vera svipaða og á Norðurlöndum; hann stækkar hægt. Rafbókamarkaðurinn er innan við 1% af markaðnum hér á landi, að sögn Bryndísar. „Þetta tekur tíma og sala rafbóka á án efa eftir að aukast en markaðurinn er enn sem komið er mjög lítill. Bókabransinn hér snýst mikið um að gefa bækur, sérstaklega á þessum árstíma.“

Þó svo að tölurnar sýni að færri rafbækur komi út í ár miðað við árið 2012, þá segir fjöldinn ekki alla söguna, bendir Bryndís á. Margar af þeim rafbókum sem komu út árið 2012 komu eingöngu út sem rafbók. „Minni tilraunamennska er nú í gangi en miðað við t.d. árið 2012. Færri bækur koma nú eingöngu út á rafrænu formi.“

Sala íslenskra rafbóka lakari

Sala á íslenskum rafbókum hefur verið lakari í ár en í fyrra en auðvitað er helsti sölutíminn eftir, segir Stefán Hjörleifsson eigandi eBóka, sem selur rafbækur og hljóðbækur. „Ástæðan eru sú að fáar íslenskar rafbækur koma út á árinu. Það hefur þó gengið ágætlega að selja þær rafbækur sem við höfum fengið í sölu,“ segir Stefán. Hann vonast til að fleiri útgefendur, að undanskildu Forlaginu, átti sig á því að þeir þurfi að taka þátt í þessari þróun ef ekki eigi illa að fara.

Stefán segir vandamálið liggja í því að útgefendur vilji halda í prentuðu bókina og komi titlunum ekki yfir á rafbókarform fyrr en mun seinna. „Segja má að útgefendur séu í samkeppni við sjálfa sig. Það hefur ekki verið hvetjandi fyrir þá að gefa út rafbækur því salan hefur verið svo lítil. Á móti kemur að salan verður aldrei almennileg fyrr en gott úrval er í boði.“ Hann bendir á að bókin sé í eðli sínu þannig vara að fólk vill fá að lesa sinn uppáhaldshöfund um leið og verkið kemur út. „Rafbókaunnendur sitja ekki við sama borð og aðrir neytendur bóka því þeir þurfa jafnvel að bíða í nokkra mánuði til að fá verkið.“

Hann líkir rafbókavæðingunni við tónlistarútgáfu og segir að um leið og afritunarvarnir hafi verið afnumdar af tónlist þá hafi sú útgáfa vaxið. Hann segir höfundavarnir, sem útgefendur hafa valið, hamlandi í bókaútgáfu. Hann tekur fram að aðgengi þurfi að vera gott og hvert aukaskref sem kaupandinn þurfi að taka á netinu sé hamlandi.

Forlagið með svipaðan fjölda

Tæplega 40 nýjar rafbækur koma út hjá Forlaginu í ár. Þetta er svipaður fjöldi og í fyrra en er þó nokkuð meira en árið 2012.

„Stefna Forlagsins er að reyna að gefa út flestar skáldsögur sem rafbók á svipuðum tíma og prentaða bókin kemur,“ segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins.

Hann bendir á að útgefendur séu ekki eins hikandi við að gefa út rafbók samtímis prentuðu bókinni og þeir voru í fyrstu. Egill segir sölu rafbóka vera litla enn sem komið er. „Ég trúi því að með auknu framboði aukist eftirspurnin.“ Unnið er að því að koma nýjustu titlunum yfir á rafbókarform en enn sem komið er eru engar slíkar í boði.

Forlagið er með rafbækur til sölu á svokallaðri ePub-skrá. „Vonandi í náinni framtíð verður þetta skráarsniðsvandamál úr sögunni þegar við förum að streyma rafbókum.“

Egill, ásamt fleirum, hefur unnið að því í rúmt ár að koma á fót rafbókaveitu. Hún yrði í sambærileg við efnisveituna Netflix og tónlistarveituna Spotify. „Þar yrði boðið upp á áskrift að bókum, aðgengi að miklu úrvali bóka gegn föstu gjaldi. Það sem helst stendur í vegi fyrir því er ekki tæknin heldur skortur á framboði. Það þýðir lítið að bjóða upp á hlaðborð með einum eða tveimur réttum.“ Hann bendir á að ef slíkt hlaðborð eigi að vera girnilegt þurfi framboðið að vera á bilinu 500-1.000 titlar.

Bjartur og veröld gefa út um 20 titla á rafbók á árinu, sem er örlítil aukning frá því í fyrra. Helmingurinn af þeim eru nýir titlar.

Engar rafbækur fyrir jólin

Enginn af þeim titlum sem bókaútgáfan Salka gefur út fyrir jólin kemur út sem rafbók. Titlarnir eru á bilinu 30 til 40 og örlítið færri en í fyrra. „Við gefum líklega út nokkrar rafbækur eftir áramótin, þá skáldsögur og kannski hugsanlega einhverjar handbækur sem ekki eru mikið myndskreyttar. Við tökum þetta rólega því þetta hefur ekki skilað miklu og þá erum við ekki stórtæk í bráð,“ segir Hildur Hermóðsdóttir, framkvæmdastjóri

Sölku. Innan við tugur rafbóka hefur alls komið út hjá Sölku. Að sögn Hildar þá hafa þær ekki selst mikið.

Bókaútgáfan Sögur gefur út 28 titla fyrir jólin. Engin af þeim bókum mun koma út sem rafbók. Sömu sögu er að segja um bókaútgáfuna Dimmu.

Þjónusta við kaupendur

„Okkar stefna er að gefa allar textabækur líka út sem rafbækur. Þetta hefur verið markmið okkar frá upphafi og við lítum á rafbókina sem sjálfsagða þjónustu við kaupandann,“ segir Marta Hlín Magnadóttir sem á bókaútgáfuna Bókabeituna ásamt Birgittu Elínu Hassell. Bókabeitan gefur eingöngu út barna-, unglinga- og ungmennabækur. Í ár koma átta titlar út á rafbókarformi sem eru um 80% útgefinna titla.

„Við viljum fá börn og unglinga til að lesa meira og á því formi sem þau kjósa sjálf. Þau geta verið með rafbókina í símanum og þar með í vasanum.“

Allar bækur Bókabeitunnar eru fáanlegar á Amazon.com. Að sögn Mörtu er sala rafbókanna ekki komin almennilega af stað ennþá, hvorki hjá Amazon né hjá innlendum rafbókasölum. „Við teljum samt mikilvægt að bjóða líka upp á rafbækurnar á Amazon. Sumir vilja bara lesa á íslensku en ekki ensku og því þurfa íslenskar rafbækur að vera á boðstólum fyrir allar tegundir rafbókalesara. Margir á Íslandi nota Kindle fyrir Amazon og einnig þeir sem búa erlendis.“

mbl.is/Styrmir Kári
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK