Hótel Saga boðin til sölu

Hótel Saga.
Hótel Saga.

Á síðustu mánuðum hafa margir fjárfestar haft samband við Bændasamtök Íslands og lýst yfir áhuga á að kaupa fasteign og rekstur Hótel Sögu. Í ljósi þess hefur stjórn Bændasamtaka Íslands ákveðið að óska eftir formlegum tilboðum og ráðið fyrirtækjaráðgjöf MP banka til þess að sjá um söluferlið. Sú vinna felst í því að taka saman upplýsingar um hótelið og annast kynningu fyrir áhugasama kaupendur með gagnsæjum hætti. Þannig er tryggt jafnræði meðal áhugasamra fjárfesta. Endanleg ákvörðun um sölu verður tekin af Búnaðarþingi en í ljósi mikils áhuga á starfsemi hótelsins þótti rétt að kanna áhuga fjárfesta með þessum hætti. 

Hótelið er í eigu Hótel Sögu ehf. sem er 50 ára gamalt fyrirtæki í eigu Bændasamtaka
Íslands. Á hótelinu eru 209 herbergi, tíu funda- og veislusalir og tveir veitingastaðir. Þar
starfa um 100 manns. Fasteign Hótel Sögu ehf. við Hagatorg er um 19.000 fermetrar að
stærð og hýsir hótelstarfsemi, veitingastaði, banka, hárgreiðslustofu, líkamsræktarstöð o.fl.
Skrifstofur Bændasamtaka Íslands eru áþriðju hæð fasteignarinnar.

Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir í fréttatilkynningu að samhliða miklum vexti í ferðaþjónustu hafi rekstur Hótel Sögu gengið vel. „Þá benda áætlanir til þess að enn meiri aukning verði á fjölda ferðamanna á næstu árum. BÍ vilja leita allra leiða til þess að ávaxta eignir sínar með viðunandi hætti. Nú er rétti tíminn til að skoða hvort það geti verið hagfellt fyrir Bændasamtökin að eftirláta sérhæfðan hótelrekstur í hendur aðila sem vilja byggja sig upp á þeim vettvangi en ávaxta þess í stað eignir samtakanna með öðrum hætti.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK