Auglýsingastofan Jónsson & Le'macks hefur hlotið tilnefningu til alþjóðlegu hönnunarverðlaunanna Epica vegna umbúðahönnunar fyrir íslenska sjávarsaltið Norðursalt. Með tilnefningunni hafa umbúðirnar nú verið tilnefndar til þrennra eftirsóttustu hönnunarverðlauna heims.
Epica-verðlaunin hafa verið veitt í tæpa þrjá áratugi. Þau eru einu alþjóðlegu hönnunarverðlaunin sem veitt eru af fjölmiðlum og eiga rúmlega fjörutíu tímarit, blöð og veffjölmiðlar um heim allan sæti í dómnefnd.
Norðursalt var í sumar tilnefnt til Cannes Lions-hönnunarverðlaunanna sem eru þau virtustu sem veitt eru fyrir hönnun í heiminum. Umbúðirnar fengu einnig Red Dot-verðlaun fyrr á þessu ári sem þykja þau eftirsóttustu sem veitt eru á sviði vöruhönnunar. Með Epica-tilnefningunni hefur Norðursalt því verið tilnefnt til þrennra eftirsóttustu hönnunarverðlauna heims á árinu. Umbúðirnar hafa auk þess unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga á Íslandi, bæði í FÍT-keppninni og Lúðrinum.
Hönnuðir umbúðanna eru Albert Muñoz, Sigurður Oddsson og Þorleifur Gunnar Gíslason hjá Jónsson & Le'macks, í samstarfi við Jón Helga Hólmgeirsson vöruhönnuð og teiknarann Mark Summers.
Norðursalt kom á markað í október 2013 og hefur unnið sér fastan sess á borðum íslenskra meistarakokka. Utan Íslands er Norðursalt nú fáanlegt í gæðaverslunum í Berlín og er frekari sókn hafin á markaði í Þýskalandi, annars staðar á Norðurlöndum, Ítalíu, í Japan og Bandaríkjunum.