Dregur úr blindu tengdri sykursýki

RetinaRisk er ætlað þeim 32 milljónum Bandaríkjamanna sem þjást af …
RetinaRisk er ætlað þeim 32 milljónum Bandaríkjamanna sem þjást af sykursýki.

Íslenska sprotafyrirtækið Risk Medical Solutions hefur sett hugbúnaðinn RetinaRisk á markað í Bandaríkjunum. RetinaRisk getur hjálpað sjónfræðingum og augnlæknum við að taka klínískar ákvarðanir við skimanir fyrir augnsjúkdómum tengdum sykursýki.

RetinaRisk er ætlað þeim 32 milljónum Bandaríkjamanna sem þjást af sykursýki og vann Risk Medical Solutions náið með íslenskum og bandarískum sérfræðingum á sviði augnlækninga og sykursýki að þróun á vörunni. 

Risk Medical Solutions hefur undanfarna mánuði átt í samningaviðræðum við bandarískt tryggingarfyrirtæki um sölu og dreifingu á kerfinu um öll Bandaríkin en fyrirtækið er eitt það stærsta á þessum markaði og tryggir 69 milljónir Bandaríkjamanna. Á næstu árum stendur einnig til að dreifa kerfinu í Evrópu og Asíu

Stíla inn á ObamaCare

Undanfarin fjögur ár hefur reikniformúlan sem stýrir áhættumati kerfisins farið í gegnum fjórar klínískar prófanir í Bretlandi, Danmörku, Hollandi og á Spáni og RetinaRisk hefur verið í prófunum undanfarna 12 mánuði.

RetinaRisk gefur læknum aukna getu til að fræða sjúklinginn um sinn sjúkdóm og persónubundið ástand, sem og að taka meðvitaðar ákvarðanir tengdar meðferðinni. RetinaRisk veitir læknum einnig þann möguleika að senda skýrslur sín á milli um áhættumat sjúklinga sem getur flýtt framhaldsmeðferð hjá þeim tiltekna sjúkling.

Ólafur Pálsson, framkvæmdastjóri Risk Medical Solutionsm, segir í tilkynningu að fyrirtækið hafi komið með RetinaRisk á hárréttum tíma því kerfið stíli inn á þær breytingar sem eru að eiga sér stað með The Affordable Care Act eða ObamaCare. „Á næstu sex árum mun einstaklingum sem þurfa á þjónustu sjónfræðinga að halda fjölga um 40 milljónir. Kerfið býður læknum upp á skilvirkari leiðir til meðferðar sem og fræðsluefni fyrir sjúklinga. Það má því segja að RetinaRisk muni hjálpa einstaklingum við að stýra sínum sjúkdómi betur og draga úr blindu tengdri sykursýki meðal Bandaríkjamanna.”

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK