Lært af mistökum fortíðarinnar?

Hagfræðideild Landsbankans spáir 3,5% meðalhagvexti til ársloka 2017.
Hagfræðideild Landsbankans spáir 3,5% meðalhagvexti til ársloka 2017. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hagfræðideild Landsbankans kynnti í dag heldur bjartsýnni spá en Hagstofan og Seðlabankinn hafa áður birt þar sem spáð er 3,5 prósent meðalhagvexti til ársloka 2017. Jafnframt er því spáð að atvinnuleysi haldi áfram að minnka, að fasteignaverð fari hækkandi og að verðbólga verði að meðaltali 3,2%. Reiknað er með því að hagvöxtur til ársins 2016 verði að meginþorra borinn uppi af vexti einkaneyslu, en jafnframt er bent á að hún ein og sér, geti aldrei orðið grunnur bættra lífskjara til lengri tíma.

Spáin var kynnt á opnum morgunverðarfundi í Hörpu í morgun í tilefni af útgáfu Þjóðhags, ársrits Hagfræðideildar bankans.

Samkvæmt spánni verður hagvöxtur 2,7% í ár, rúmlega 4% á árunum 2015 og 2016, en lækkar svo í tæp 3% árið 2017. Verðbólgan verður nálægt markmiði Seðlabankans fram eftir árinu 2015, en áhrif skuldaleiðréttinga og niðurstöður kjarasamninga eru hugsanlega talin geta raskað því jafnvægi sem nú ríkir. Þó er ekki gert ráð fyrir að verðbólga fari mikið yfir efri vikmörk verðbólgumarkmiðsins, heldur verði hún að jafnaði um 3,2% á spátímabilinu.

Viðkvæmt jafnvægi

Flest bendir til þess að þjóðarbúið hafi náð sér vel á strik eftir efnahagsáfallið 2008. „Hins vegar er það einnig svo að sumpart er hagkerfið á svipuðum slóðum og það var áður en síðasta þensluskeið hófst fyrir alvöru, um og eftir 2004,“ segir í spánni.  „Spurningin vaknar hvort þeir aðilar sem stýra hagkerfinu, þ.e. ríkisstjórn og Seðlabanki, hafi lært af mistökum fortíðarinnar. Peningastefnan hefur verið varfærin og yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar eru aðhald í ríkisfjármálum, hallalaus ríkisrekstur og lækkun skulda ríkissjóðs.“

„Umtalsverð fjárútlát úr ríkissjóði til lækkunar einkaskulda lántakenda á verðtryggðum íbúðalánum gengur þó gegn þessari stefnu og veldur áhyggjum vegna þess sem koma skal. Lítið má í reynd út af bregða til að raska því jafnvægi og þeim langþráða verðstöðugleika sem nú ríkir,“ segir í spánni. „Enn eru nokkur stór vandamál sem tengjast hruninu óleyst. Þar skiptir að sjálfsögðu mestu uppgjör þrotabúa föllnu bankanna og afnám fjármagnshafta. Önnur stór úrlausnarefni sem bíða tengjast fjármálum hins opinbera, þar vega einna þyngst gríðarlega erfið staða Íbúðalánasjóðs og ófjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar lífeyrissjóða starfsmanna ríkisins.“

Ársrit Hagfræðideildar Landsbankans var birt í dag.
Ársrit Hagfræðideildar Landsbankans var birt í dag. hag / Haraldur Guðjónsson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK