Vísitala íbúðaverðs hækkar milli mánaða

Vísitalan sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.
Vísitalan sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. mbl.is/Styrmir Kári

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,6 prósent frá fyrri mánuði en á síðastliðnum þremur mánuðum hækkaði hún um 0,7%. Á síðastliðnum sex mánuðum hækkaði hún um 2,8% og síðastliðnum 12 mánuðum hækkaði hún um 6,9%. Vísitalan stendur í 403,7 stigum. Vísitalan sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.

Þjóðskrá Íslands greinir frá þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK