Gagnrýna yfirvöld fyrir skort á langtímahugsun

Ari Skúlason hvetur til langtímaáætlana í ríkisrekstri og að skuldir …
Ari Skúlason hvetur til langtímaáætlana í ríkisrekstri og að skuldir verði grynnkaðar. mbl.is/Árni Sæberg

Hagfræðideild Landsbankans varar við útgjaldaaukningu og skuldasöfnun ríkissjóðs á næsta ári. Deildin segir að miðað við núverandi aðstæður, sé veruleg hætta á því að afkoma næsta árs verði neikvæð. Því sé þörf á að grynnka skuldir og auka afgang á fjárlögum.

,,Árið 2014 er mjög afbrigðilegt,“ segir Ari Skúlason, hagfræðingur við hagfræðideild Landsbankans, í fréttaskýringu um þetta efni í Morgumnblaðinu í dag.

,,Segja má að árið 2013 hafi verið eðlilegt þar til ríkisreikningurinn kom í júlí á þessu ári. Þá kom til 25 milljarða eignaaukning í Landsbankanum, sem er tekjufærð inn í fjármál ríkisins. Það hafði þær afleiðingar að árið 2013 kom út á núlli. Hefði ekki verið fyrir þessa eignaaukningu, hefði verið 25 milljarða króna halli á fjárlögum í fyrra.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK