Loftið má ekki heita Loftið

Farfuglar eiga skráð vörumerkið LOFT og LOFTBARINN hjá Einkaleyfastofu. Fyrirtækið …
Farfuglar eiga skráð vörumerkið LOFT og LOFTBARINN hjá Einkaleyfastofu. Fyrirtækið segir að sú hætta sé fyrir hendi á að menn geti ruglast á fyrirtækjunum sem séu keppinautar. Myndin er tekin á barnum á Loft Hostel, sem er í eigu Farfugla. mbl.is/Eva Björk

Neytendastofa hefur bannað veitingastaðnum Loftinu sem rekinn er af Boltabarnum ehf. að nota heitið Loftið. Stofnuninni barst kvörtun frá keppinautnum Farfuglum ses sem rekur m.a. Loft Bar, þar sem fyrirtækið taldi að brotið væri gegn rétti sínum með notkun heitisins.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu, sem komst að þeirri niðurstöðu að notkun Boltabarsins á heitinu væri til þess fallin að valda ruglingshættu. Taldi Neytendastofa að líta yrði til þeirrar ríku vörumerkjaverndar sem orðmerkið veitir Farfuglum, hinnar sérstæðu notkunar merkisins, stöðu viðkomandi fyrirtækja á markaðnum og samkeppnisstöðu þeirra.

Var Loftinu því bönnuð notkun auðkennanna Lofts, Loftsins og Loftbarsins og lénsins loftidbar.is til auðkenningar á starfsemi sinni.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK