Sjálfreimandi skórnir loksins á markað

Nike Power Lace skórnir
Nike Power Lace skórnir

Nike hefur staðfest að sjálfreimandi skórnir sem gerðir voru frægir í kvikmyndinni „Back to the Future“ komi á markað síðar á þessu ári.

Tinker Hatfield, sem hannaði skóinn sem Marty McFly klæddist í kvikmyndinni, staðfesti á ráðstefnunni #AgendaEmerge að teymið hans ynni nú að fullum krafti að því að koma skónum á markað. Hann gat þó ekki staðfest nákvæma dagsetningu né heldur veitt smáatriði um hönnun þeirra þeirra, en ólíklegt þykir að þeir verði mjög ódýrir þegar litið er til þess að þeir reima sig sjálfir.

Segja má að skórnir komi í búðir á hárréttum tíma þar sem kvikmyndin átti einmitt að eiga sér stað á árinu 2015.

NiceKicks og Business Insider greina frá þessu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK