Icelandair eykur flugframboð

Flugvél Icelandair á flugvellinum í Glasgow.
Flugvél Icelandair á flugvellinum í Glasgow.

Icelandair hefur bætt við flugframboð félagsins á þessu ári frá því sem áður hefur verið kynnt. Næsta sumar hefur verið bætt við sex vikulegum flugum og þannig aukið framboð á áfangastaðina Seattle, Vancouver, New York Newark, London Gatwick, París, Amsterdam og Zurich.

Í tilkynningu frá félaginu segir að gera megi ráð fyrir að farþegar Icelandair verði um 3 milljónir á árinu 2015, en áður hafði verið gert ráð fyrir 2,9 milljónum farþega.

Næsta haust, þ.e. í október, nóvember og desember, er tíðni ennfremur aukin á ýmsa áfangastaði, en sérstök athygli er vakin á því að flug til Minneapolis er framlengt um þrjá mánuði. Gert er ráð fyrir að flogið verði til borgarinnar þar til um miðjan janúar 2016 en áður hafði verið gert ráð fyrir vetrarhléi á fluginu frá miðjum október.

Í sumar verða 24 Boeing 757 farþegaþotur nýttar fyrir áætlunarflug félagsins, einni fleiri en áður hefur verið kynnt.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK