Nýr fimm milljarða nýsköpunarsjóður

Eggert Claessen, framkvæmdastjóri, Rakel Sigurðardóttir, fjármálastjóri og Svana Gunnarsdóttir, fjárfestingastjóri.
Eggert Claessen, framkvæmdastjóri, Rakel Sigurðardóttir, fjármálastjóri og Svana Gunnarsdóttir, fjárfestingastjóri. Mynd/Frumtak

Frumtak hefur stofnað nýjan sjóð, Frumtak 2 sem er fimm milljarðar að stærð. Sjóðnum er ætlað að fjárfesta með svipuðu sniði og Frumtak hefur gert frá árinu 2009. Þessi nýi sjóður hefur, líkt og fyrri sjóður, að markmiði að fjárfesta í fyrirtækjum sem hafa á að skipa öflugum teymum sem geta verið leiðandi á sínu sviði og um leið skilað góðri ávöxtun til fjárfesta.

Hluthafar í hinum nýja sjóði eru tíu lífeyrissjóðir, einn banki og umsýsluaðili sjóðsins.

Fjárfestingastjórar hins nýja sjóðs eru Eggert Claessen og Svana Gunnarsdóttir. Þau hafa verið fjárfestingastjórar Frumtaks frá byrjun og fylgt eftir fjárfestingum sjóðsins. Þau eru bæði frumkvöðlar og eiga að baki farsælan feril í rekstri eigin fyrirtækja og þekkja því vel heim frumkvöðulsins. Þau hafa í starfi sínu hjá Frumtaki setið í stjórnum þeirra fyrirtækja sem sjóðurinn hefur fjárfest í og tekið virkan þátt í að byggja upp farsæl fyrirtæki með stjórnendum þeirra eins og DataMarket, Meniga, Mentor, Controlant, Cintamani og fleiri.

Gróska í nýsköpunarfyrirtækjum

„Það er mikil gróska í fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja þessa dagana og mörg athyglisverð fjárfestingatækifæri,“ er haft eftir Eggerti Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks, í tilkynningu. „Það hefur sýnt sig í fjárfestingum Frumtaks að þessi fyrirtæki skapa fjölda áhugaverðra starfa sem eykur fjölbreytni í atvinnumálum og sala á vörum þeirra og þjónustu erlendis eykur gjaldeyristekjur þjóðarinnar. Stofnun þessa nýja sjóðs staðfestir að það er mikill og almennur skilningur á því að skjóta fleiri stoðum undir atvinnulífið, sérstaklega þeim sem byggja á íslensku hugviti og þeim mannauð sem við eigum.“

„Það er lykilatriði hjá Frumtaki að eiga gott samstarf við stjórnendur fyrirtækjanna því þetta getur verið löng vegferð þar sem gagnkvæmt traust er forsenda þess að vel takist til. Bakgrunnur okkar og reynsla verður fyrirtækjunum að liði því að fjármagnið eitt og sér dugar ekki til,“ er haft eftir Svönu Gunnarsdóttur, fjárfestingastjóra Frumtaks.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK