Sala áfengis jókst um 8,1% í janúar

Áfengi
Áfengi mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Sala áfengis jókst um 8,1% í janúar miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 7,1% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir vikudaga- og árstíðabundnum þáttum jókst velta áfengis í janúar um 5,5% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 0,9% lægra í janúar síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í gögnum Rannsóknaseturs verslunarinnar.

Velta í dagvöruverslun jókst um 0,1% á föstu verðlagi í janúar miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 0,9% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir vikudaga- og árstíðabundnum þáttum minnkaði velta dagvöruverslana í janúar um 0,1% frá sama mánuði árið áður. Verð á dagvöru hækkaði um 0,8% á síðastliðnum 12 mánuðum.

Fataverslun jókst um 10,5% í janúar miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 3,6% á breytilegu verðlagi. Verð á fötum var 6,1% lægra í janúar síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. 

Velta skóverslunar jókst um 17,2% í janúar á föstu verðlagi og jókst um 13,0% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm lækkaði í janúar um 3,6% frá janúar í fyrra.

Velta húsgagnaverslana var 13,8% meiri í janúar en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og jókst um 10,3% á breytilegu verðlagi. Velta sérverslana með rúm jókst um 13,8% frá því í fyrra á föstu verðlagi. Velta sérverslana með skrifstofuhúsgögn jókst um 4,2% á föstu verðlagi. Verð á húsgögnum hefur lækkað um 3,1% á síðustu 12 mánuðum.

Verslun með byggingavörur jókst í desember um 1,9% á föstu verðlagi og um 1,0% á breytilegu verðlagi. Verð á byggingavöru lækkaði um 0,9% á síðustu 12 mánuðum.

Velta í sölu á tölvum jókst um 12,6% í janúar á föstu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra og farsímasala jókst um 35,2%. Sala minni raftækja, svokallaðra brúnvara, jókst um 41,8% á föstu verðlagi en sala stærri raftækja, svokallaðra hvítvara, jókst um 37,4% á milli ára. Verð á raftækjum lækkaði á síðustu 12 mánuðum um 12,0%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK