Eimskip byggir 10.000 tonna frysti

Mynd/Eimskip

Eimskip hefur samið við VHE, Kælismiðjuna Frost og Suðurverk um byggingu á 10.000 tonna frystigeymslu á athafnasvæði félagsins í Hafnarfirði.

Byggingin er teiknuð af Önnu Margréti Hauksdóttur hjá AVH arkitektum en aðrir hönnuðir og ráðgjafar eru VSB, Efla og VSÓ Ráðgjöf.

Í tilkynningu frá Eimskip segir að veruleg aukning hafi orðið í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski sem kallar á aukna frystigeymsluþjónustu. Einnig sé aukin eftirspurn eftir vöruhótelþjónustu fyrir frystar neytendavörur. Eimskip hefur verið með starfsemi í Hafnarfirði allt frá árinu 1970 og rekur þar frystigeymsluna Fjarðarfrost sem rúmar um 3.000 tonn, ásamt því að vera með umfangsmikla löndunarþjónustu fyrir sjávarútveginn auk tengdrar hliðarþjónustu.

Tilbúið fyrir árslok

Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi nýrrar frystigeymslu verði tilbúinn til notkunar á þriðja ársfjórðungi 2015 og verkinu verði að fullu lokið fyrir árslok. Auk þess er möguleiki fyrir hendi á að stækka nýju geymsluna í áföngum um allt að 14.000 tonn til viðbótar í samræmi við þarfir viðskiptavina og markaðarins.

Með þessari ákvörðun er Eimskip að fylgja eftir þeirri þróun sem verið hefur í ört vaxandi sjávarútvegi og löndun á Íslandi til að geta þjónustað viðskiptavini félagsins, enda er þjónusta við sjávarútveginn ein af grunnstoðum í rekstri Eimskips.

Eimskip rekur 53 starfsstöðvar í 19 löndum og er með 16 skip í rekstri. Félagið hefur á að skipa um 1.400 starfsmönnum. Um helmingur tekna félagsins kemur frá starfsemi utan Íslands. Stefna félagsins er að veita framúrskarandi flutningaþjónustu á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK