Tæknifyrirtækjum fjölgar mest

Fyrirtækjum hefur fjölgað mest í flokki sem nefnist: Sérfræðileg, vísindaleg …
Fyrirtækjum hefur fjölgað mest í flokki sem nefnist: Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi. mbl.is/Golli

Nýskráningum einkahlutafélaga hefur fjölgað um 4% undanfarna tólf mánuði en á sama tímabili hefur gjaldþrotum fækkað um 12%. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.

Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá febrúar 2014 til janúar 2015, hefur fjölgað um 4% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.010 ný félög skráð á tímabilinu. Mest er fjölgun nýskráninga í flokknum Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi, 36% á síðustu 12 mánuðum.

Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá febrúar 2014 til janúar 2015, hafa dregist saman um 12% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 811 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjaldþrotum í flokknum fasteignaviðskipti hefur fækkað mest, eða um 33% á síðustu 12 mánuðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK