Nýr regluvörður hjá Regin

Björg Jóhannesdóttir hefur verið ráðin lögfræðingur fasteignafélagsins Reginn hf.
Björg Jóhannesdóttir hefur verið ráðin lögfræðingur fasteignafélagsins Reginn hf.

Björg Jóhannesdóttir hefur verið ráðin lögfræðingur fasteignafélagsins Regins hf. og mun jafnframt verða nýr regluvörður félagsins.

Er þetta ráðstöfun af hálfu félagsins í kjölfar aukinna umsvifa hjá félaginu samhliða stækkun og aukinnar áherslu á að styrkja og auka sjálfstæði í regluvörslu með löglærðum aðila, samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu.

Björg mun jafnframt verða ritari stjórnar og fjárfestatengill félagsins.

Björg er með embættispróf í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2007. Þá lauk Björg LL.M-gráðu frá háskólanum í Edinborg árið 2013. Björg starfaði áður hjá Slitastjórn Kaupþings hf. og á lögfræðisviði Kaupþings banka hf. frá árinu 2008. Þá starfaði Björg sem aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness á árunum 2006 til 2008. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK