FME til Írlands á árshátíð

Unnur Gunnarsdóttir forstjóri FME
Unnur Gunnarsdóttir forstjóri FME mbl.is/Ómar Óskarsson

Starfsmannafélag Fjármálaeftirlitsins hefur skipulagt náms- og árshátíðarferð til Írlands í apríl og mun hún standa frá fimmtudeginum 23. apríl, sem er sumardagurinn fyrsti, til sunnudagsins 26. apríl. Ferðin mun ekki trufla daglega starfsemi eftirlitsins.Tæplega helmingur starfsmanna Fjármálaeftirlitsins hefur ákveðið að taka þátt í ferðinni.

Frá þessu er greint á heimasíðu FME.

Náms- og fræðsludagskrá ferðarinnar, sem verður á föstudeginum, er unnin í samvinnu við írska Fjármálaeftirlitið sem er hluti af Írska Seðlabankanum en samstarf þess og Fjármálaeftirlitsins hefur verið náið og gott á undanförnum árum að því er fram kemur á heimasíðu FME. Dagskráin er skipulögð þannig að starfsmenn Fjármálaeftirlitsins taka þátt í fjölþættri fræðslu þar sem lögð verður áhersla á áhættumiðað eftirlit. 

Starfsmenn Fjármálaeftirlitsins greiða eigin ferða- og gistikostnað að öllu leyti en Fjármálaeftirlitið styrkir starfsmannafélagið ekki sérstaklega vegna ferðarinnar. Sameiginlegur árshátíðarkvöldverður verður í boði starfsmannafélagsins á laugardagskvöldinu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK