Jafngildir 3 mánaða matarútgjöldum

Að sögn Samtaka atvinnulífsins jókst kaupmáttur einstaklings með meðaltekjur um …
Að sögn Samtaka atvinnulífsins jókst kaupmáttur einstaklings með meðaltekjur um 225 krónur eftir skatt á árinu 2013 eða um 19 þúsund krónur á mánuði. Sverrir Vilhelmsson

Ávinningur heimilanna af auknum kaupmætti launa á undanförnum mánuðum jafngildir rúmlega þriggja mánaða matarútgjöldum meðalheimilis eða um 450 þúsund krónum.

Að sögn Samtaka atvinnulífsins jókst kaupmáttur einstaklings með meðaltekjur um 225 krónur eftir skatt á árinu 2013 eða um 19 þúsund krónur á mánuði. Það samsvarar um 450 þúsund krónum á hjón og því þriggja mánaðar matarútgjöldum meðalheimilis.

„Á rúmlega einu ári hefur kaupmáttur launa aukist umtalsvert og verðbólga hrapað niður í sögulegar lægðir. Þetta er ekki tilviljun því að þessu var stefnt við undirritun kjarasamninga í desember 2013 en árangurinn er framar vonum,“ segir í tilkynningu á heimasíðu SA.

Bent er á að kaupmáttur launa jókst um 5,7% á síðasta ári sem er mesta hækkun á einu ári frá árinu 1998. Ársverðbólga mældist þá aðeins 0,8% í lok síðasta árs. „Með hóflegum launahækkunum og hagstæðum ytri skilyrðum hafa fyrirtæki almennt getað haldið verðlagi stöðugu og því hefur fólk haft úr meiru að spila,“ segir SA.

Mynd af vefsíðu SA
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK