Rekstur vindmylla umfram væntingar

Vindmyllur við Búsfell.
Vindmyllur við Búsfell. mbl.is/Árni Sæberg

Rekstur vindmylla Landsvirkjunar fyrir ofan Búrfell, sem verið hafa í rekstri frá því í febrúar 2013, hefur verið umfram væntingar samkvæmt fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Þannig hafi nýtingin á fyrsta heila rekstrarári verið einstaklega góð og langt yfir heimsmeðaltali. Mælikvarðinn í þeim efnum sé nýtnihlutfall en á heimsvísu sé það 28%.

„Nýtnihlutfall vindmylla Landsvirkjunar var 44% á árinu 2014, sem var fyrsta heila dagatalsárið sem vindmyllur Landsvirkjunar voru í rekstri. Það er með því allra hæsta í heiminum og staðfestir að miklir möguleikar eru á frekari raforkuvinnslu úr vindorku á svæðinu. Rekstrarlegt tiltæki hefur verið tæplega 99% fyrir aðra vindmylluna og tiltæki hinnar um 97,5% árið 2014, sem sýnir hversu áreiðanlegar vindmyllurnar eru í rekstri,“ segir ennfremur.

Þá kemur fram að tvö svæði hafi verið tekin til frekari skoðunar af hálfu Landsvirkjunar fyrir mögulega framtíðar uppbyggingu: Þjórsár- og Tungnaársvæðið, þar sem rannsóknarvindmyllurn séu nú, og einnig virkjanasvæði Blöndustöðvar. Tillaga að áætlun mats á umhverfisáhrifum fyrir Búrfellslund liggur fyrir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK