Verðbréfaskráning Íslands skiptir um nafn

Þórður Arnar Þórðarson

Verðbréfaskráning Íslands hf. mun taka upp nafnið Nasdaq verðbréfamiðstöð hf., eða á ensku Nasdaq CSD Iceland hf. Nafnabreytingin er liður í því að tengja fyrirtækið með sýnilegri hætti við bandaríska móðurfélagið Nasdaq og þannig endurspegla alþjóðlegar tengingar íslensku starfseminnar.

Nasdaq verðbréfamiðstöð var stofnuð árið 1997, þá sem Verðbréfaskráning Íslands. Frá árinu 2008 hefur fyrirtækið verið í eigu kauphallarsamstæðunnar Nasdaq, sem á og rekur kauphallir á 26 mörkuðum, 5 verðbréfaskráningar og 1 uppgjörshús.

Helsta hlutverk Nasdaq verðbréfamiðstöðvar er m.a. að sjá um miðlæga skráningu rafrænna verðbréfa fyrir útgefendur á íslenskum markaði og sjá um miðlæga vörslu og uppgjör rafrænna verðbréfa fyrir reikningsstofnanir.

Framkvæmdastjóri Nasdaq verðbréfamiðstöðvar er Guðrún Ó. Blöndal.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK