Vaxtahækkun væntanleg í júní

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands mbl.is/Ómar Óskarsson

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum, 4,5%. Þetta er í takt við spár greiningardeilda bankanna en flestir telja auknar líkur á vaxtahækkun og tekur peningastefnunefndin undir það og segir líklegt að vextir bankans muni hækka í júní.

„Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 4,5%.

Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans verður hagvöxtur um 4,5% í ár og að meðaltali tæplega 4% á ári á spátímanum, sem er meiri vöxtur en bankinn spáði í febrúar. Framleiðsluspenna myndast á þessu ári og nær hámarki á því næsta. Batinn á vinnumarkaði hefur færst í aukana að undanförnu. Sé tekið mið af hinum miklu launakröfum sem nú eru uppi mætti ætla að spenna á vinnumarkaði væri nú þegar til staðar eða að slaki hafi a.m.k. minnkað hraðar en samrýmist verðstöðugleika.

Verðbólga er enn lítil og lítils háttar lækkun verðlags mælist sé horft fram hjá áhrifum húsnæðiskostnaðar. Lítil alþjóðleg verðbólga og stöðugt gengi krónu hafa haldið aftur af verðbólgu og vegið á móti áhrifum töluverðra launahækkana innanlands. Verðbólguhorfur hafa hins vegar versnað frá síðustu spá Seðlabankans. Líkur á hagstæðu samspili lítillar innfluttrar verðbólgu og hóflegra kjarasamninga virðast nú hverfandi, enda hafa verðbólguvæntingar hækkað frá síðustu spá eftir að hafa lækkað í markmið í upphafi árs. Samkvæmt grunnspá bankans fer verðbólga yfir markmið strax í upphafi næsta árs og líklegra er að verðbólga verði meiri en spáð er en að hún verði minni. Framvinda kjaraviðræðna eftir að spáin var gerð hefur aukið þessa hættu enn frekar.

Vaxtalækkun Seðlabankans undir lok síðastliðins árs var byggð á snarpri hjöðnun verðbólgu og lækkun verðbólguvæntinga sem leiddi til hækkunar raunvaxta umfram það sem efnahagsástand og nærhorfur voru þá taldar gefa tilefni til. Í yfirlýsingum nefndarinnar á þeim tíma var hins vegar bent á að miklar launahækkanir og sterkur vöxtur eftirspurnar gætu grafið undan nýfengnum verðstöðugleika og valdið því að hækka yrði vexti á ný. Þróun kjaraviðræðna að undanförnu ásamt hækkun verðbólguvæntinga og vísbendingum um öflugan vöxt eftirspurnar benda til þess að þessar aðstæður séu nú að skapast og því líklegt að hækka þurfi vexti þegar á næsta fundi nefndarinnar í júní,“ segir í tilkynningu á vef Seðlabanka Íslands.

Vextir Seðlabanka Íslands verða samkvæmt þessu sem hér segir:

Daglán: 6,25%
7 daga veðlán: 5,25%
7 daga bundin innlán: 4,50%
Viðskiptareikningar: 4,25%

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK