Verðhjöðnun í fyrsta sinn í 55 ár

BBC bendir á að þegar verðhjöðnun mældist í síðasta skipti …
BBC bendir á að þegar verðhjöðnun mældist í síðasta skipti í landinu hafi söngvarinn Lonnie Donegan átt efsta lagið á vinsældalistum; My Old Man's a Dustman

Verðhjöðnun mældist 0,1% í Bretlandi í aprílmánuði. Þetta er í fyrsta sinn sem verðhjöðnun mælist frá því að breska hagstofan hóf samræmdar mælingar árið 1960. Samkvæmt áætlunum frá hagstofunni mældist einmitt 0,6% verðhjöðnun á því ári og eru því 55 ár síðan þetta gerðist síðast.

Stærsti áhrifaþátturinn var lægra verð á flugfargjöldum og og siglingum.

Englandsbanki hafði áður varað við því að verðhjöðnun gæti mælst á stuttu tímabili á þessu ári. George Osborne, bankastjóri Englandsbanka, sagði þetta aðeins vera tímabundið ástand og að því ætti ekki að rugla saman við skaðlega og varandi verðhjöðnun. 

Þegar verðhjöðnun mælist 0,1% þýðir það að vörur sem kostuðu 100 pund í apríl 2014 ættu að hafa kostað 99,9 pund í apríl á þessu ári. 

BBC greinir frá þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK