Fyrstu kaupendur koma sterkir inn

mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

„Töluverð hækkun varð á íbúðaverði á höfuðborgarsvæðinu á síðastliðnu ári en byggingamarkaður er hægt og sígandi að ná sér á strik aftur og vísbendingar eru um að íbúðamarkaðurinn sé að sigla í ákveðið jafnvægi þar sem íbúðaframboð mun aukast á næstu misserum en engu að síður ríkir töluverð óvissa á markaðnum.“

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Íslandsbanka vegna útkomu nýrrar skýrslu Reykjavík Economics um fasteignamarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu sem unnin var fyrir bankann. Þar segir ennfremur að heildarvelta á íbúðamarkaðinum á síðasta ári hafi numið 257 milljörðum króna sem sé 16% hækkun að nafnvirði frá árinu á undan. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hafi hækkað um 8,8% á síðasta ári. Fjölbýli hafi hækkað um 9% í verði en sérbýli um 7,7%.

Ekki hefur verið byggt nægilega mikið á höfuðborgarsvæðinu til þess að mæta náttúrulegri íbúafjölgun innan þess. „Samtals voru 954 íbúðir fullgerðar á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2014 sem er 203 íbúðum meira en árið 2013. Að jafnaði hafa tæplega 1200 íbúðir verið fullgerðar árlega á árabilinu 1983-2014. Um síðustu áramót voru 1813 íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu sem eru 364 færri íbúðir en um áramótin 2013. Byrjað var á 570 íbúðum á síðasta ári sem er vel undir langtíma meðaltali.“

Ennfremur kemur fram í skýrslunni að skuldastaða heimila hafi batnað nokkuð með minnkandi atvinnuleysi og auknum kaupmætti. Bólumyndun á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu sé takmörkuð en íbúðarhúsnæði sé engu að síður orðið dýrt miðsvæðis í Reykjavík. Þá sé unga fólkið í auknum mæli að komast inn á húsnæðismarkaðinn.

„Staða fyrstu kaupenda hefur batnað þar sem þeir eru nú orðnir yfir 20% kaupenda á höfuðborgarsvæðinu en voru aðeins 13,6% að meðaltali frá því 2008. Meðalaldur fyrstu kaupenda hefur hækkað og er í dag 29 ár sem er svipað og í Bretlandi. Íslandsbanki hóf á síðasta ári að veita þeim sem kaupa sína fyrstu íbúð sérstakt aukalán til að auðvelda kaupin. Viðtökurnar hafa verið góðar og fer eftirspurn eftir þeim vaxandi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK