HB Grandi og Enoksen Seafood AS hafa komist að samkomulagi um að Enoksen Seafood kaupi frystitogarann Juni, áður Venus HF 519, af HB Granda. Þetta kemur fram í tilkynningu HB Granda til Kauphallarinnar.
Kaupverðið er 12,2 milljónir danskra króna sem jafngildir um 243 milljónum íslenskra króna. Samningurinn er gerður með fyrirvara um lokaástandsskoðun á skipinu, að því er segir í tilkynningunni.
Fyrr í vikunni var greint frá því að Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hefði keypt uppsjávarskipin Faxa RE 9 og Ingunni AK 150 ásamt 0,6763463% aflahlutdeild í loðnu af HB Granda.