Tvær nýjar verslanir í flugstöðinni

Verslun Airport fashion.
Verslun Airport fashion.

Tvær nýjar verslanir hafa verið opnaðar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, en um er að ræða tískuvöruverslunina Airport fashion og verslun Blue Lagoon, sem opnaði í nýrri mynd á nýjum stað í flugstöðinni.

Airport fashion býður upp á tískufatnað og fylgihluti fyrir dömur og herra. Mikið úrval er af bæði íslenskum og erlendum vörumerkjum í versluninni. Airport fashion er hluti af norskri verslunarkeðju sem rekur 22 verslanir á flugvöllum í Noregi, Svíþjóð, Bretlandi og Írlandi. Verslunin á Keflavíkurflugvelli er stærsta verslunin sem fyrirtækið hefur opnað á flugvelli til þessa. Meðal vörumerkja sem Airport fashion býður upp á er: Farmers Market, Feldur, Spaksmannsspjarir, Sif Jakobs, Hendrikka Waage, By Malene Birger, Esprit, Ane Mone, Hugo Boss, Long Island, Peak Performance og DKNY.

Í verslunin Blue Lagoon geta viðskiptavinir fengið húðgreiningu með sérstöku appi sem Bláa Lónið hefur hannað til þess að viðkomandi fái réttar húðvörur og meðferð fyrir húðgerðina sína. Þá má prófa vörurnar í versluninni en þar er sérstakt meðferðaborð sem nokkrir gestir geta sest við og notið fræðslu um Blue Lagoon húðvörurnar og þau áhrif sem þær hafa á húðina.  

Þá geta hópar sem eru að ferðast saman, t.d. vinkonuhópar, pantað sér tíma og byrjað ferðalagið í versluninni, fengið örkennslu um húðumhirðu, þegið léttan drykk og húðvörugjöf.  

Kíkt inn í verslun Blue Lagoon í flugstöðinni.
Kíkt inn í verslun Blue Lagoon í flugstöðinni.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK