Jóhannes fullviss um sýknu

Jóhannes Rúnar Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður og stjórnarmeðlimur slitastjórnar Kaupþings hf., segir ásakanir Vincent Tchenguiz og tengdra aðila á hendur sér eiga enga stoð í raunveruleikanum og með öllu ósannar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kaupþingi og Jóhannesi, en dómstóll í Englandi komst að þeirri niðurstöðu í dag að stefnendur gætu ekki sótt mál sitt gegn Kaupþingi fyrir enskum dómstólum. Þeir gætu hins vegar fjallað um mál Tchenguiz gegn Jóhannesi.

Í tilkynningunni er eftirfarandi haft eftir Jóhannesi:

„Ég er mjög ánægður með niðurstöðu enskra dómstóla varðandi Kaupþing. Að mínu mati eru þessar kröfur lítt dulin tilraun Vincent Tchenguiz til að tryggja sjálfum sér og tengdum skuldurum óeðlilegan ávinning við slit Kaupþings. Skuld þessara aðila við Kaupþing nema meira en 143 milljónum sterlingspunda, sem jafngildir um 30 milljörðum íslenskra króna. Skuldin er tryggð með persónulegri ábyrgð Vincent Tchenguiz að fjárhæð 10 milljónir sterlingspunda, sem jafngildir meira en 2 milljörðum króna.

Eins og ég hef þegar gefið skýrslu um til réttarins í Englandi, þá er það fjarstæðukennt að ég hafi tekið þátt í meintu samsæri eða öðrum ólögmætum athöfnum líkt og borið er í stefnu málsins. Ég endurtek að þær ásakanir sem gerðar eru á hendur mér eiga sér enga stoð í raunveruleikanum og eru með öllu ósannar. Rannsóknir erlendra lögregluyfirvalda og handtaka Vincent Tchenguiz eru ákvarðanir sem teknar voru af þeim og á þeirra ábyrgð og hvorki ég né Kaupþing leituðumst nokkru sinni við að koma slíkum aðgerðum í kring.

Ég mun verjast öllum kröfum áðurnefndra aðila af festu enda kröfur þeirra tilhæfulausar með öllu og allar sakargiftir rangar. Ef Vincent Tchenguiz og tengdir aðilar kjósa að halda kröfum á hendur mér til streitu er ég þess fullviss að enskir dómstólar muni sýkna mig af öllum kröfum sem hafðar eru uppi á hendur mér.“

Frétt mbl.is: Dómsmál Tchenguiz ekki tekið fyrir í Englandi

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK