Skemmtistaðnum Dolly í Hafnastræti verður lokað laugardaginn 11. júlí eftir þriggja ára rekstur. Dóra Takefusa opnaði staðinn og byggði hann á öðrum stað í hennar eigu - Jolene í Kaupmannahöfn.
Ásgeir Kolbeinnson keypti hins vegar staðinn fyrir hálfu ári síðan.
Rekstrarstjóri staðarins, Þura Stína, tilkynnti um lokunina á Facebook í morgun þar sem hún sagði að breytingar væru búnar að vera í kortunum í einhvern tíma. Nú væri komið að því að loka staðnum.
Til stendur að kveðja staðinn í vikunni fyrir lokun en frekari dagskrá verður kynnt á mánudaginn.