Tekjur Nýherja aukast um 16%

Heildarhagnaður nam 69 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi.
Heildarhagnaður nam 69 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi. Ljósmynd/Nýherji

Nýherji hagnaðist um 111 milljónir króna á fyrri árshelmingi og öll félög samstæðunnar skiluðu hagnaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýherja, þar sem einnig segir að um sé að ræða 16% tekjuaukningu.

„Við erum sátt við rekstur Nýherja og dótturfélaga á öðrum fjórðungi og það sem af er ári. Afkoma samstæðunnar á fyrri helmingi árs er yfir áætlunum og betri en á sama tímabili í fyrra. Það er ánægjulegt að sjá verulegan tekjuvöxt á milli ára, bæði í vöru- og þjónustusölu innanlands og hjá TEMPO, þar sem erlendar tekjur halda áfram að aukast hratt,“ er haft eftir Finni Oddssyni, forstjóra Nýherja.

Heildarhagnaður fyrirtækisins nam 69 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi.

Finnur segir að hundruð nýrra viðskiptavina hafi bæst í ört stækkandi hóp á fjórðungnum, en í ljósi aukinna umsvifa sé gert ráð fyrir að starfsfólki TEMPO fjölgi umtalsvert á árinu.

„Til að styðja við frekari vöruþróun, tengslauppbyggingu og markaðsstarf erlendis, verður allt að fjórðungshlutur í TEMPO settur í söluferli í lok þriðja ársfjórðungs. Góður gangur er svo í rekstri annarra dótturfélaga Nýherja, sérstaklega í sölu á nýjum og spennandi mannauðs- og launalausnum frá Applicon á Íslandi og bankalausnum hjá Applicon í Svíþjóð.“

Hér má finna frekari upplýsingar um uppgjör Nýherja.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK