Reitir kaupa Skútuvog 3

Skútuvogur 3 en þar Eggert Kristjánsson með vöruhús
Skútuvogur 3 en þar Eggert Kristjánsson með vöruhús Af vef Reita

Reitir eru að kaupa Skútuvog 3 af Sjöstjörnunni á 670 milljónir króna og verður eignin afhent nýjum eiganda um næstu mánaðamót.

Um er að ræða 3.753 fm vöruhús sem hýsir starfsemi heildsölunnar Eggerts Kristjánssonar ehf. Fyrirvarar eru gerðir um að fallið verði frá forkaupsrétti þriðja aðila að fasteigninni og um samþykki stjórnar Reita fyrir kaupunum.

Í gildi er leigusamningur um alla fasteignina til ársins 2020 og nema leigutekjur af eigninni samkvæmt honum rúmlega 67 milljónum kr. á ársgrundvelli.

Leiða kaupin til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um rúmlega 50 milljónir kr. á ársgrundvelli en áhrif kaupanna á NOI fyrir árið 2015 eru hins vegar óveruleg, segir í tilkynningu.

Sjöstjarnan er fasteignafélag í eigu Skúla Gunnars Sigfússonar sem oft er kenndur við Subway.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK