Alvogen fær einkasölurétt á Alzheimerlyfi

Róbert Wessman, forstjóri Alvogen.
Róbert Wessman, forstjóri Alvogen. mbl.is/Ómar Óskarsson

Lyfjafyrirtækið Alvogen hefur fengið samþykki bandarísku matvæla- og lyfjastofnunarinnar til að markaðssetja samheitalyfja útgáfu af alzheimerslyfinu Exelon sem gefið er í plástraformi. Þar sem Alvogen var fyrst til að sækja um markaðsleyfi á lyfinu, hefur fyrirtækið fengið 180 daga einkarétt á sölu þess.

Í tilkynningu frá Alvogen segir að markaðssetning lyfsins sé sú stærsta í sögu fyrirtækisins en árleg sala plástursins í Bandaríkjunum er um 52 milljarðar króna. Lyfið verður markaðssett í þremur styrkleikum og dreifing lyfsins er hafin.

Exelon plásturinn (rivastigmine) hefur verið notaður við meðhöndlun á minnisglöpum sem tengjast Alzheimers sjúkdómnum sem er í dag sjötta algengasta dánarorsök í Bandaríkjunum. Áætlaður kostnaður bandaríska heilbrigðiskerfisins, vegna sjúkdómsins, er talinn vera um 226 milljarðar bandaríkjadala.

Í tilkynningu segir að markaðssetning Alvogen á nýju samheitalyfi muni lækka lyfjaverð og gefur fleiri sjúklingum möguleika á að njóta meðferðar.

Róbert ánægður með söluréttinn

Haft er eftir Róberti Wessman forstjóra Alvogen að það sé ánægjulegt að tekist hafi að fá einkasölurétt á lyfinu í Bandaríkjunum sem sé stærsti lyfjamarkaður heims. „Markaðssetning lyfsins er sú stærsta í sögu Alvogen og styrkir enn frekar vaxandi starfsemi okkar í Bandaríkjunum. Frá árinu 2009 hefur Alvogen sett 23 lyf á markað í Bandaríkjunum en þetta er í fyrsta sinn sem okkur tekst að vera á undan samkeppninni með nýtt samheitalyf þar í landi, sem er eitthvað sem öll fyrirtæki stefna að. Árangurinn má meðal annars þakka öflugu þróunarstarfi okkar í Bandaríkjunum.“

Alvogen er alþjóðlegt samheitalyfjafyrirtæki með starfsemi í 35 löndum. Bandaríkjamarkaður er stærsti einstaki markaður fyrirtækisins en meðal annarra markaða má nefna Suður-Kóreu, Rúmeníu, Búlgaríu, Tævan, Kína, Ungverjaland, Rússland og Japan. Á Íslandi starfa rúmlega 80 manns hjá Alvogen og systurfyrirtækinu Alvotech. Fyrirtækin vinna nú að byggingu nýs Hátækniseturs í Vatnsmýrinni sem verður fullbúið í ársbyrjun

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK