Lán frá AGS greitt upp fyrirfram

Seðlabankastjóri segir þetta sé til marks um ágætan árangur af …
Seðlabankastjóri segir þetta sé til marks um ágætan árangur af efnahagsáætluninni og gott samstarf við starfsfólk sjóðsins. mbl.is/Golli

Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að greiða fyrirfram eftirstöðvar láns frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS). Um er að ræða endurgreiðslu að jafnvirði um 42 milljarða kr. (237 milljónir SDR), með gjalddaga 2015 og 2016.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að uppgreiðsla lánsins frá AGS fyrr en áætlað hafi verið sé til marks um ágætan árangur af efnahagsáætluninni og gott  samstarf við starfsfólk sjóðsins.

Fram kemur í tilkynningu, að lausafjárstaða Seðlabankans sé rúm um þessar mundir, meðal annars vegna viðskipta bankans á innlendum gjaldeyrismarkaði. Því sé svigrúm til að minnka skammtímaskuldir í erlendum gjaldeyri.

„Með fyrirframgreiðslunni lækka erlendar skuldir þjóðarbúsins og Seðlabankans. Seðlabankinn var lántaki þar sem hann er fjárhagslegur aðili að AGS fyrir hönd íslenska ríkisins og er því ekki um að ræða bein áhrif á skuldir ríkissjóðs. Gjaldeyrisforði dregst saman vegna ofangreindrar skuldastýringar.

Lánið frá AGS var tekið í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda hér á landi og AGS í kjölfar bankahrunsins í október 2008. Heildarfjárhæð lánsins, sem tekið var í áföngum í samræmi við efnahagsáætlunina, nam um 250 ma.kr. (1.400 milljónum SDR) þegar áætluninni lauk í ágúst 2011. Ísland tók einnig lán frá Norðurlöndunum, Færeyjum og Póllandi að fjárhæð 304 ma.kr. (1.970 milljónir evra) í tengslum við efnahagsáætlunina en þau lán voru greidd fyrirfram á árunum 2012-2015. Með uppgreiðslu AGS-lánsins lýkur jafnframt eftirfylgni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi í kjölfar loka efnahagsáætlunarinnar (e. post program monitoring).“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK