Verðmæti afla upp úr sjó nam 10,7 milljörum í júní sem er um 18,9 prósent aukning samanborið við júní 2014. Verðmæti botnfiskafla nam tæpum 8 milljörðum í mánuðinum og jókst um rúm 19 prósent aukning miðað við fyrra ár.
Þetta kemur fram hjá Hagstofunni. Þar segir jafnframt að verðmæti flatfiskafla hafi numið tæpum 1,3 milljörðum í júní sem er aukning um tæpar 500 milljónir samanborið við júní 2014.
Aflaverðmæti uppsjávartegunda nam um milljarði í júní sem er sambærilegt við fyrra ár.
Verðmæti skel- og krabbadýraafla nam 436 milljónum í júní og dróst saman um 13 prósent á milli ára.
Á tólf mánaða tímabili frá júlí 2014 til júní 2015 jókst aflaverðmæti um 7,9 prósent miðað við sama tímabil ári fyrr. Á þessu tímabili hefur verðmæti uppsjávarafla aukist um tæp 22 prósent og verðmæti botnfisks um tæp 5 prósent.