Reitir kaupa Hótel Borg

Reitir hafa keypt Hótel Borg.
Reitir hafa keypt Hótel Borg. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Reitir fasteignafélag hefur ákveðið að kaupa níu fasteignir, þ. á m. Hótel Borg og Laugaveg 77  sem áður hýsti útibú Landsbankans, en hýsir í dag m.a. höfuðstöðvar Plain Vanilla og Pennann Eymundsson. Verðið er 17.980 milljónir króna og kaupin verða fjármögnuð með lánsfé og yfirtöku áhvílandi skulda.

Fasteignirnar voru í eigu fasteignasjóðanna SRE I slhf. og SRE II slhf. sem eru í rekstri Stefnis hf. Um er að ræða tæplega 37.500 fermetra af húsnæði ásamt byggingarrétti.

Fasteignirnar eru: Hótel Borg, Borgartún 37, Guðrúnartún 10, Þingvallarstræti 23 á Akureyri, Laugavegur 77, Fiskislóð 11, Skúlagata 17, Síðumúli 16-18 og Faxafen 5 en allt að sex þúsund fermetra byggingarréttur fylgir Borgartúni 37.

Eignirnar eru í útleigu til um tuttugu aðila með um 99% útleiguhlutfall en helstu leigutakar eru KEA hótel, Advania , Nýherji, Icelandair hótel, Geymslur og Fastus.

1.360 milljóna leigutekjur

Leigutekjur á ársgrunni nema um 1.360 milljónum króna og er meðaltími leigusamninga um tólf ár. Í tilkynningu segir að kaupin leiði til þess að áætlaður rekstrarhagnaður Reita hækki um 1.125 milljónir króna á ársgrundvelli.

Afhending eignanna mun fara fram þegar fyrirvörum vegna viðskiptanna hefur verið aflétt en fyrirvarar eru gerðir um samþykki hluthafafunda seljenda, niðurstöður áreiðanleikakannana, samþykki Samkeppniseftirlitsins og endanlega fjármögnun Reita fyrir kaupunum. Fyrir liggur tilboð um fjármögnun frá Arion banka háð fyrirvara.

Með kaupunum stækkar eignasafn Reita um níu prósent í fermetrum talið, bókfært virði eignasafnsins eykst um sautján prósent og áætlaður rekstrarhagnaður um átján prósent.

Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita.
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita. Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK