Vinnusamasti íslenski leikarinn?

Ingvar E. Sigurðsson er einn ástsælasti leikari þjóðarinnar.
Ingvar E. Sigurðsson er einn ástsælasti leikari þjóðarinnar. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Á þeim 24 árum sem liðin eru frá því að Ingvar E. Sigurðsson lék í sinni fyrstu kvikmynd hefur hann leikið í 31 íslenskri kvikmynd. Á þeim tíma hefur verið gerð 141 kvikmynd hér á landi.

Ingvar hefur þannig leikið í 22 prósent allra kvikmynda sem gerðar hafa verið frá árinu 1992. Þetta kemur fram hjá Fréttatímanum sem bendir á að Ingvar sé líklega meðal duglegustu leikara landsins.

Auk þess að leika í meira en einni íslenskri kvikmynd á ári að meðaltali hefur hann þá einnig tekið að sér hlutverk í nokkrum erlendum kvikmyndum á borð við Everest og K-19. Þá hefur hann haldið trú sinni við leikhúsið og leikið mörg stór hlutverk í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu auk þess að hafa verið einn af stofnendum Vesturports.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK