„Berskjaldað fyrir svindli“

ASÍ bendir á að mörg fyrirtæki séu með tímabundna starfsemi …
ASÍ bendir á að mörg fyrirtæki séu með tímabundna starfsemi í tenglsum við mannvirkjagerð. mbl.is/Golli

Alþýðusamband Íslands hefur á síðustu vikum orðið vart við vandamál sem tengjast undirboðum á vinnumarkaði. Í mörgum tilfellum er um að ræða undirverktaka hjá íslenskum fyrirtækjum eða starfsmannaleigur og þá oft í tengslum við mannvirkjagerð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ þar sem bent er á vaxandi fjölda erlendra fyrirtækja sem eru með tímabundna starfsemi hér á landi, einkum í tengslum við mannvirkjagerð en einnig aðra atvinnustarfsemi. 

ASÍ segir það vera staðreynd að erlent launafólk sem starfi hjá þessum fyrirtækjum sé berskjaldað fyrir svindli enda eðli málsins samkvæmt með takmarkaða þekkingu á þeim réttindum sem því eru tryggð með kjarasamningum og lögum á íslenskum vinnumarkaði.

Þá hafi komið fram að þessi fyrirtæki hafi ekki verið að greiða skatta og skyldur til íslensks samfélags. „Á þessar staðreyndir hefur formaður Framsýnar, stéttarfélags og og fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar bent, varað við afleiðingunum og hvatt til þess að við þeim verði brugðist af festu,“ segir ASÍ.

Ósammála frétt RÚV

Vísað er til hádegisfréttar RÚV frá laugardeginum 7. nóvember sl., þar sem haft var eftir sviðsstjóra fyrirtækjaskrár Ríkisskattstjóra að ekkert benti til þess að íslensk fyrirtæki væru að reyna að komast hjá því að greiða skatta og gjöld með því að útvista verkefnum til erlendra fyrirtækja sem veita þjónustu tímabundið hér á landi.

„Jafnframt mátti skilja á sviðsstjóranum að lítið sé um erlend fyrirtæki með tímabundna starfsemi hér á landi. Alþýðusambandið er ósammála því sem fram kom í framangreindri frétt,“ segir í tilkynningu.

„Staðreyndirnar tala sínu máli. Jafnframt bendir ASÍ á mikilvægi þess að embætti RSK skoði málið nánar og taki ábendingar þeirra aðila alvarlega sem næst vinnumarkaðnum standa og búa yfir mikilvægum upplýsingum í þessum efnum.“

ASÍ Alþýðusamband Íslands
ASÍ Alþýðusamband Íslands mbl.is/Hjörtur
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK