Gríðarlegt tap hjá Rio Tinto

Rio Tinto Alcan rekur álverið í Straumsvík
Rio Tinto Alcan rekur álverið í Straumsvík mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Stórfyrirtækið Rio Tinto Alcan tapaði 866 milljónum Bandaríkjadala, um 110 milljörðum íslenskra króna, í fyrra en árið á undan var fyrirtækið rekið með hagnaði. Undirliggjandi hagnaður fyrirtækisins dróst saman um rúm 50% milli ára. Fyrirtækið á og rekur álverið í Straumsvík.

Á vef fyrirtækisins kemur fram að undirliggjandi hagnaður fyrirtækisins, sem er annað stærsta námafyrirtæki heims, hafi verið 4,54 milljarðar Bandaríkjadalir sem er 51% minna en árið 2014 er hann var 9,31 milljarður dala.

Í tilkynningu kemur fram að Rio Tinto starfi við mjög krefjandi aðstæður og vísað til samdráttar í Kína og verðlækkana á hrávörumarkaði.

Afkomutilkynningin í heild

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK