Leó Hauksson til Gamma

Leó Hauksson hefur verið ráðinn á svið sölu og viðskiptaþróunar …
Leó Hauksson hefur verið ráðinn á svið sölu og viðskiptaþróunar hjá Gamma. Mynd/Gamma

Leó Hauksson hefur verið ráðinn til GAMMA Capital Management á svið sölu og viðskiptaþróunar. Hann mun m.a. sinna samskiptum við viðskiptavini og samstarfsaðila, bæði hérlendis og erlendis og koma að þróun og eftirfylgni nýrra fjárfestingaverkefna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Í fyrra hóf GAMMA starfsemi í London og vinnur að því að efla þá starfsemi enn frekar á þessu ári með það fyrir augum að geta boðið stækkandi hópi viðskiptavina sinna heildarlausnir í fjárfestingum. Leó mun starfa með Jónmundi Guðmarssyni sem nýlega var ráðinn framkvæmdastjóri sölu og viðskiptaþróunar hjá GAMMA.

Leó Hauksson hefur 17 ára reynslu á fjármálamarkaði. Hann starfaði hjá Kaupþingi og Arion banka á árunum 1999 til 2010, lengst af í markaðsviðskiptum. Árið 2011 starfaði Leó í markaðsviðskiptum hjá Íslandsbanka, en frá upphafi árs 2012 til síðasta hausts starfaði hann hjá Straumi fjárfestingabanka, síðast sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar.

Leó er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og lauk prófi í verðbréfaviðskiptum árið 2002. Hann á fjögur börn með konu sinni, Sif Jónsdóttur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK