Metur ábyrgð lífeyrisskuldbindinga

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað starfshóp í samráði við Samband …
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað starfshóp í samráði við Samband íslenskra sveitafélaga. mbl.isBrynjar Gauti

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu samstarfsnefndar ríkis og sveitarfélaga, eða hinnar svokölluðu Jónsmessunefndar, að skipa starfshóp í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Hópurinn mun hafa það hlutverk að meta ábyrgð lífeyrisskuldbindinga sem myndast hafa í opinberum lífeyrissjóðum vegna samrekstrar ríkis og sveitarfélaga og ýmissa viðfangsefna sem kostuð hafa verið af þessum aðilum.

Starfshópnum er ætlað að greina og gera tillögu að heildstæðu uppgjöri milli aðila. Jafnframt verður lagt mat á lífeyrishækkanir sem greiddar hafi verið vegna ábyrgðar launagreiðenda og greiðslur vegna bakábyrgðar, uppreiknaðar á sambærilegan hátt til uppgjörs. Þá verður farið yfir forsendur flutnings réttinda milli lífeyrissjóða sveitarfélaga og ríkisins og ábyrgð vegna þeirra.

Helstu verkefni starfshópsins eru:

  1. Greina og meta lífeyrisskuldbindingar sem stofnast hafa vegna samrekstrar eða sameiginlegra viðfangsefna ríkis og sveitarfélaga.
  2. Gera tillögur um hvernig ábyrgð ríkis og sveitarfélaga gagnvart þessum skuldbindingunum skuli skilgreind.
  3. Gera tillögur um hvernig skuli staðið að fjárhagslegu uppgjöri lífeyrisskuldbindinganna á grundvelli skilgreindrar ábyrgðarskiptingar.

Eftirtaldir eru skipaðir í starfshópinn af hálfu sveitarfélaga:

  • Birgir Björn Sigurjónsson
  • Dan Jens Brynjarsson
  • Regína Ásvaldsdóttir

Eftirtaldir eru skipaðir í starfshópinn fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytis:

  • Halldóra Friðjónsdóttir,
  • Anna Valbjörg Ólafsdóttir
  • Viðar Helgason,

Formaður starfshópsins er Magnús Pétursson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri.

Vinnuhópurinn á að ljúka störfum eigi síðar en í árslok 2016. Að  auki skal hann á fyrri hluta árs skila áfangaskýrslu þar sem skilgreind verði helstu viðfangsefni og álitamál. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK