1,7 milljarða viðsnúningur hjá WOW

Skúli Mogensen, forstjóri WOW air.
Skúli Mogensen, forstjóri WOW air. Rax / Ragnar Axelsson

Samkvæmt uppgjöri WOW air fyrir síðasta ár skilaði félagið hagnaði upp á 1,1 milljarð króna eftir skatta. Það felur í sér viðsnúning upp á rúma 1,7 milljarða frá fyrra ári, þegar liðlega 600 milljóna króna tap var á rekstrinum.

Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi félagsins, er ánægður með afkomu ársins en segir að hagnaður hefði getað orðið mun meiri en raun varð á. „Sú mikla lækkun olíuverðs sem varð á síðasta ári gefur okkur tilefni til mikillar bjartsýni. Hins vegar höfðum við fest eldsneytisverðið í árslok 2014 og sú ákvörðun ein og sér kostaði félagið um tæpan milljarð þegar upp var staðið, þar sem olíuverðið lækkaði jafn mikið og raun varð á. Nú í ár höfum við ekki fest verðið enn sem komið er og það eitt og sér gæti haft mjög jákvæð áhrif á rekstrarárið.“

Lággjaldamódelið að virka

Skúli segir rekstrarniðurstöðuna undirstrika þann mikla vöxt sem félagið hafi gengið í gegnum og að allar kennitölur gefi til kynna að lággjaldamódelið sem keyrt hafi verið eftir sé að virka sem skyldi.

„Vöxturinn hefur verið mikill og sætaframboðið hjá okkur fór úr 600 þúsundum í 840 þúsund sæti á síðasta ári. Þrátt fyrir það reyndist sætanýtingin 88%, sem telst afar hátt hlutfall hjá hvaða flugfélagi sem er, hvað þá félagi sem er að stækka með þeim hætti sem við erum að gera.“

Alls námu tekjur félagsins á síðasta ári rúmum 17 milljörðum og jukust um 58% frá árinu 2014, þegar þær námu 10,7 milljörðum. Heildargjöld félagsins jukust um 38% og fóru úr 11,4 milljörðum í 15,7 milljarða.

EBITDA-hagnaður var 2,5 milljarðar króna og EBITDAR, sem er hagnaður fyrir afskriftir, skatta, fjármagnsliði og leigugjöld, nam réttum 5,0 milljörðum, en var einungis um 300 milljónir króna árið á undan. EBITDAR-framlegð var 29,5%.

Norwegian helsta samkeppnin

Félagið hefur þegar greint frá áformum um mikinn vöxt á þessu ári. „Með auknu sætaframboði í 1,9 milljón sæti, mun stærri flugflota og aukna tíðni tel ég einnig að við eigum inni töluverða stærðarhagkvæmni í ár. Miðað við þessa miklu framboðsaukningu og bókunarstöðuna í dag gerum við ráð fyrir því að veltan fari úr tæpum 17 milljörðum í 39 milljarða á þessu ári.“

Skúli segir að Ameríkuflugið hafi farið vel af stað þegar það komst á í fyrra. Viðbrögð við nýjum áfangastöðum á vesturströnd Bandaríkjanna hafi verið jákvæð.

„Það er mjög sterk bókunarstaða á flugið til Kaliforníu þannig að við höfum tekið rétta ákvörðun þar. Við stefnum að því að verða leiðandi á lengri flugleiðum meðal lággjaldafélaga. Það má segja að helsta samkeppnin á því sviði sé frá Norwegian. Ég geri ráð fyrir því að nýtingarhlutfallið muni haldast áfram nærri 90% á þessu ári rétt eins og í fyrra.“

Á þessu ári verður félagið með 11 Airbus-vélar á eigin flugrekstrarleyfi en í fyrra voru þær tvær.

Flotinn hjá WOW hefur stækkað hratt.
Flotinn hjá WOW hefur stækkað hratt.
mbl.is
Fleira áhugavert
ISK
USD
EUR
GBP
CAD
DKK
NOK
SEK
Fleira áhugavert
ISK
USD
EUR
GBP
CAD
DKK
NOK
SEK