„Ég hefði kannski átt að vita það“

Frosti Sigurjónsson á 17,5% hlut í Dohop.
Frosti Sigurjónsson á 17,5% hlut í Dohop. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Íslenska ríkið hefur eignast 4% hlut í flugleitarvélinni Dohop í gegnum stöðuleikaframlag gamla Landsbankans.  Áætlað verðmat Dohop er um 850 milljónir og er hlutur ríkisins því metinn á um fjörtíu milljónir króna.

RÚV greinir frá þessu. Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á 17,5% hlut í félaginu og segist í samtali við RÚV ekki hafa vitað af því að ríkið myndi eignast hlut í Dohop. „Ég hefði kannski átt að vita það,“ segir Frosti og bendir síðan á að hver sem er geti keypt og selt hluti í félaginu.

Frosti er formaður efnahags-og viðskiptanefndar sem fékk til umfjöllunar frumvarp fjármálaráðherra um hvernig eigi að standa að sölu þessara eigna.

Davíð Gunnarsson, framkvæmdastjóri Dohop, segir 4% hlutinn hafa komið til í gegnum uppgjör slitastjórnarinnar við hluthafa í félaginu.

Selja 80% innan 18 mánaða

Í fyrrnefndu frumvarpi er lagt til að sérstakt félag muni sjá um að annast umsýslu og að fullnusta og selja þær eignir sem eru hluti af stöðugleikaframlagi slitabúa fallina fjármálafyrirtækja.

Í nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarpið segir að fjármála- og efnahagsráðuneytið áætli að félagið nái að fullnusta 80% verðmæta innan 18 mánaða.

Í gegnum stöðuleikaframlögin hefur ríkið eignast eignarhluti í fleiri fyrirtækjum og má þar t.d. nefna 100% hlut í Lyfju.

Frétt mbl.is: Ríkið eignast allt hlutafé í Lyfju

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK