Endurspeglast í öllum verslunum

Flestar þær vörur sem lækkuðu í verði á milli mælinga …
Flestar þær vörur sem lækkuðu í verði á milli mælinga voru innfluttar vörur. mbl.is/Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Mjólkurvörur, ostar, kjötvörur og drykkjarvörur hafa almennt hækkað í verði milli ára en verð á innfluttum vörum hefur í flestum tilvikum lækkað.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ um samanburð á verðkönnunum verðlagseftirlits ASÍ frá því í maí 2015 og apríl 2016 í Bónus, Krónunni, Nettó, Fjarðarkaupum, Samkaupum Úrval, Hagkaupum, Víði og Iceland.

Samkvæmt tilkynningunni má sjá verðbreytingarnar endurspeglast í öllum verslunum af þeim vörum sem bornar eru saman í mælingunum. Á tímabilinu hafi almennt verðlag verið stöðugt og gengið styrkst um 9%.

Miklar verðhækkanir á mjólkurvörum

Vöruflokkurinn ostur, viðbit og mjólkurvörur hefur hækkað í öllum verslunum. Stoðmjólk hefur hækkað á bilinu 4% til 9% í verði, 200 g. KEA kókosskyr hefur hækkað um allt að 11% og 400 g. af rjómaosti til matargerðar hefur hækkað um allt að 8%. 250 g. af ósöltuðu smjöri hefur hækkað um allt frá 9% og upp í 17%.

„Athygli vekur að nær allar vörur sem skoðaðar vöru í þessum vöruflokki hafa hækkað í verði í öllum verslunum á tímabilinu að undanskildu innflutta viðbitinu Bertolli sem hefur lækkað um allt að 7%,“ segir í tilkynningu ASÍ

Innfluttar vörur lækka

Flestar þær vörur sem lækkuðu í verði á milli mælinga voru innfluttar vörur og má þar m.a. nefna Holger hveiti bruður sem hafa lækkað um allt að 13% og Pågen hveiti bruður sem hafa lækkað um allt að 16%. River grjón í 1 kg. umbúðum hafa einnig lækkað í verði, um allt að 28% sem og túrtappar frá o.b. sem hafa lækkað á bilinu 11% til 28%.

Heimsmarkaðsverð á kaffi hefur lækkað undanfarið ár sem ætti samhliða sterkara gengi að skila sér í verðlækkun á kaffi. Í samanburðinum voru skoðaðar nokkrar tegundir af kaffi. Má þar t.d. nefna Merrild mellemristet sem hefur lækkað á bilinu 3% til 16% og Senseó columbia 16 stk. sem hefur lækkað á bilinu 1% til 18%. Kílóverð á Morgundögg frá Kaffitári hefur hins vegar hækkað í verði um 11% til 25% en í fyrra var innihald pokanna minnkað úr 500gr. í 400gr. án þess að það endurspeglaðist í verði vörunnar.   

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK