Ólafur: Hef verið búsettur erlendis

Ólafur Ólafsson
Ólafur Ólafsson mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

„Frá árinu 2005 hef ég verið búsettur erlendis, fyrst með heimili á Englandi en í Sviss frá 2009.  Langstærstur hluti starfsemi minnar er utan Íslands. Ég kem að rekstri fjölda fyrirtækja erlendis sem veita hátt í 2000 manns atvinnu. Þar má nefna nefna félögin KIMI SARL í Lúxemborg og Neptune Holding BV í Hollandi sem fjallað er um í Morgunblaðinu í dag.“

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Ólafi Ólafssyni, aðaleiganda Samskipa. Í frétt Morgunblaðsins í dag kom fram að Ólafur hafi á síðustu árum fjár­magnað er­lend­ar fjár­fest­ing­ar í gegn­um fé­lag sitt Kimi S.á.r.l. í Lúx­em­borg. Hann sé einn margra Íslend­inga sem fjár­festa í gegn­um fé­lög í Lúx­em­borg.

Frétt mbl.is: Geyma milljarða í Lúxemborg

Staðið að hjálparstarfi

Ólafur segir að KIMI hafi meðal annars staðið að hjálparstarfi með uppbyggingu á fiskvinnslu og löndunarstöðvum í Sierra Leone í Afriku. Um sé að ræða umfangsmesta og metnaðarfyllsta þróunarstarf í sjávarútvegi í landinu.

Verkefnið sé unnið í samstarfi við Aurora velgjörðarsjóð sem konan hans og Ólafur sjálfur hafi starfrækt frá árinu 2007. Sjóðurinn hafi komið að fleiri umfangsmiklum hjálpar- og þróunarverkefnum í Afríku sem hægt sé að lesa um á vefsíðu Aurora.

Óalfur er aðaleigandi Samskipa.
Óalfur er aðaleigandi Samskipa. mbl.is/Sigurður Bogi

29 milljarða króna velta

Í gegnum félagið Neptune Holding hafi verið fjárfest í sjávarútvegi utan Íslands. Nefna megi fyrirtækið Asia Seafood, sem sé með móðurfélag á Íslandi og kaupi sjávarafurðir af útgerðum við Kyrrahafið, til vinnslu og sölu á markaði í Asíu og Bandaríkjunum.

„Fyrirtækið veltir árlega yfir 200 milljónum Bandaríkjadala (tæpum 29 milljörðum króna),“ segir Ólafur.

Neptune Holding hafi þá einnig fjárfest í Lumar Seafood á Spáni sem rekur sérhæfða verksmiðju sem framleiðir hágæða fiskrétti og túnfisk til sölu í Evrópu. Þá eigi Neptune einnig línuveiðiskipið Ana Barral sem hefur stundað veiðar á Indlandshafi.

350 þúsund evrur til Íslands

Þá segir Ólafur að KIMI hafi á árinu 2013 lagt til 350 þúsund evrur til fjárfestingar á Íslandi. Megin þorri þeirra fjármuna hafi farið til uppbyggingar á eldhúsi og stækkunar Landnámssetursins í Borgarnesi sem hjónin hafi stutt við frá upphafi. „Það var liður í að styðja við fjölbreytt menningarlíf í Borgarnesi og stuðla að uppbyggingu í samfélaginu,“ segir Ólafur.

„Upplýsingar um þessi félög og fleiri sem ég kem að eru opinber gögn sem almenningur getur nálgast í fyrirtækjaskrám þeirra landa sem þau hafa starfsemi í,“ segir Ólafur að lokum í yfirlýsingu sinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK