Íslandshótel fá stjörnuflokkun Vakans

Viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn á Grand Hótel Reykjavík …
Viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 26. april.

Íslandshótel hafa hlotið stjörnuflokkun Vakans fyrir sex hótel á sínum vegum en það eru Grand Hótel Reykjavík, Hótel Reykjavík Centrum, Best Western Hótel Reykjavík, Fosshótel Baron, Fosshótel Lind og Fosshótel Reykjavík.

Auk þess fá veitingastaðirnir Haust, Bjórgarðurinn og Grand Restaurant allir gæðaviðurkenningu Vakans og umhverfisflokkun líkt og áðurnefnd hótel. Fleiri hótel innan Íslandshótela munu fylgja í kjölfarið á næstu misserum.

Vakinn er sérhannað gæða- og umhverfiskerfi fyrir íslenska ferðaþjónustu, byggt á erlendri fyrirmynd.

Meginmarkmið Vakans er að efla gæði, öryggi og umhverfisvitund í ferðaþjónustu með handleiðslu og stuðningi, jafnframt því að byggja upp samfélagslega ábyrgð innan greinarinnar.  Íslandshótel eru afar stolt af að hafa farið í þessa ítarlegu vinnu og fyrir að hafa náð svo glæsilegum árangri á sviði gæða og umhverfismála.

Viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 26. april. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK