Johan Rönning efst fimmta árið í röð

Johan Rönning var valið fyrirtæki ársins 2016 í hópi stórra …
Johan Rönning var valið fyrirtæki ársins 2016 í hópi stórra fyrirtækja. Mynd/VR

Fyrirtækið Johan Rönning var valið fyrirtæki ársins í flokki stærri fyrirtækja í árlegri könnun VR, en þetta er fimmta árið í röð sem fyrirtækið tekur fyrsta sætið. Expectus var í fyrsta sæti í flokki millistórra fyrirtækja og Vinnuföt sigraði í flokki minni fyrirtækja. 

Hástökkvarar milli ára eru Klettur - sala og þjónustu í flokki stórra fyrirtækja, Fastus í hópi millistórra fyrirtækja og Karl K. Karlsson í hópi minni fyrirtækja. 

VR hefur tilnefnt Fyrirtæki ársins árlega í tvo áratugi á grundvelli könnunar meðal félagsmanna og fjölda annarra starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Alls fengu um 35 þúsund starfsmenn á almenna vinnumarkaðnum senda könnun í ár og hafa aldrei verið fleiri. Um tólf þúsund svör bárust frá starfsmönnum eitt þúsund fyrirtækja. Gerð er krafa um 35% lágmarkssvörun í könnuninni, að öðrum kosti eru niðurstöður fyrirtækisins ekki birtar. Alls uppfylltu 225 fyrirtæki þá kröfu og byggir val á Fyrirtæki ársins á viðhorfi starfsmanna þessara fyrirtækja. 

Tíu efstu fyrirtækin í hverjum stærðarflokki fyrir sig eru Fyrirmyndarfyrirtæki. Hægt er að sjá lista yfir öll fyrirtækin og stöðu þeirra í könnuninni hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK